Liebe Besucherinnen und Besucher,

aufgrund unseres Sommerfestes sind wir am 03. September 2026 bis 14 Uhr erreichbar. Am 04. September 2026 sind wir wieder wie gewohnt für Sie da. Vielen Dank für Ihr Verständnis.

Ihr Team von Sack Fachmedien

Elskar mig, elskar mig ekki 1-4 | E-Book | www.sack.de
E-Book

E-Book, Deutsch, 180 Seiten

Reihe: Elskar mig

Elskar mig, elskar mig ekki 1-4


1. Auflage 2022
ISBN: 978-87-26-86196-9
Verlag: Saga Egmont
Format: EPUB
Kopierschutz: Adobe DRM (»Systemvoraussetzungen)

E-Book, Deutsch, 180 Seiten

Reihe: Elskar mig

ISBN: 978-87-26-86196-9
Verlag: Saga Egmont
Format: EPUB
Kopierschutz: Adobe DRM (»Systemvoraussetzungen)



Elskar mig, elskar mig ekki er sería sem samanstendur af fjórum bókum um vinkonurnar Ingu, Soffíu, Ellu og Jóhönnu og þeirra fyrstu reynslu af ástinni. Bækurnar fléttast listilega vel saman, þar sem lesandi fær að kynnast sjónarhorni hverrar sögupersónu á sama málinu - allar hliðar teningsins eru kannaðar. Þessi leið höfundar að skrifunum vekur upp ákveðna samkennd með hverri persónu, þar sem bakgrunnur þeirra er kynntur og lesandi öðlast frekari skilning á gjörðum hverrar vinkonu. Það sem lesandi situr eftir með er það að dæma ekki bókina af forsíðunni, heldur að sjá undir yfirborðið þar sem í ljós kemur að allir eru að ganga í gegnum eitthvað sem hefur áhrif á þeirra dagsdaglega líf.Elskar mig, elskar mig ekki er sería um fjórar vinkonur og þeirra fyrstu reynslu af ástinni.

Line Kyed Knudsen (f. 1971) kom fyrst fram sem höfundur barna- og ungmennabóka árið 2003. Line skrifaði bækurnar um Lísu og Emmu og einnig seríuna K fyrir Klara, sem hafa verið þýddar yfir á mörg tungumál á undanförnum árum og njóta gríðarlegra vinsælda á heimsvísu. Hún er nú orðin einn af langvinsælustu höfundum bóka fyrir þennan aldurshóp og hafa bækur hennar hlotið fjölda bókmenntaverðlauna.
Elskar mig, elskar mig ekki 1-4 jetzt bestellen!

Autoren/Hrsg.


Weitere Infos & Material


1. Kafli


Ég er að læsa hjólinu mínu þegar ég sé Alexander útundan mér.  Ég stend fyrir framan íþróttahöllina. Fuglarnir syngja í runnunum. Ég flýti mér að smella hjálminum af mér svo ég líti ekki eins asnalega út. Ég er sú eina í bekknum sem notar enn þá hjálm. Ég veit alveg hvað hann fer mér illa, sérstaklega á sumrin.
 Alexander stoppar hjólið sitt beint fyrir framan mig og lætur hvína í dekkjunum.
 “Hæ, Soffía!” kallar hann og allt í einu svimar mig af gleði.
 “Hæ,” segi ég, þar sem ég stend tvístígandi við hjólið mitt. Ég er í bleiku stuttbuxunum mínum og svarta hlírabolnum með íþróttatöskuna á bakinu.  
 Ég hef verið skotin í Alexander síðan í fyrsta bekk en hann hefur aldrei sýnt mér áhuga. Ég er líka bara lítil og leiðinleg písl.

  Hann hefur aldrei horft á mig, talað við mig eða elt mig þegar við höfum verið í eltingarleik. Það er alltaf ég sem horfi á hann. Aldrei á hinn veginn.
 Alexander horfir á mig. Ég riða á fótunum. Ég veit að hann er að fara á fótboltaæfingu. Hann æfir á hverjum þriðjudegi og fimmtudegi eins og ég. Ég æfi sund og ég er í keppnisliðinu. Ég er alltaf búin klukkutíma á undan honum og ég sé hann á vellinum þegar ég hjóla heim. Hann spilar sem sóknarmaður og hann er eldsnöggur í tæklingunum. Hann er sólbrúnn á bæði handleggjunum og fótleggjunum mestan hluta ársins.
 “Mætið þið í partíið hjá Ellu á morgun?” spyr Alexander og skutlar hjólinu sínu í hjólastandinn við hliðina á mínu hjóli. “Þið Inga, meina ég.”
 Ég tek svo fast í hankana á töskunni minni að ég verð hvít á hnúunum. Inga er besta vinkona mín í bekknum.
 “Auðvitað, algjörlega,” tekst mér að stama upp úr mér og tvístíg um leið ósjálfrátt.
 Ella vinkona mín ætlar að vera með bekkjapartí á morgun. Hún er líka vinkona Ingu. Við erum allar vinkonur en það er eins og Inga sé miðpunkturinn. Við Ella erum sjaldan einar saman.
 “Þetta verður síðasta partíið í sjöunda bekk,” segir Alexander og kinkar kolli.

  Ég kinka líka kolli. Eftir sumarfríið verður okkur skipt upp í nýja bekki og við fáum líka nýja kennara. Ég verð dálítið kvíðin þegar ég hugsa um það. Ég vona innilega að ég lendi í bekk með Ingu og Ellu aftur. Sérstaklega Ingu. Ég get ekki hugsað mér að vera ekki í sama bekk og hún. Inga hefur alltaf litið eftir mér. Hún er sterkur persónuleiki og segir alltaf það sem henni finnst. Ólíkt mér. Ég segi aldrei neitt sniðugt. Ég þoli ekki þegar kennarinn spyr mig spurningar í tíma. Ég þoli ekki þegar allir horfa á mig.
 “Soffía mætti alveg sýna meiri áhuga í tímunum,” sagði kennarinn minn, Karen, við pabba minn í síðasta foreldraviðtali. “Hún mætti sýna meira frumkvæði. Réttu upp hönd, Soffía!”
 Pabbi virkaði mjög vonsvikinn. “Það er ekki nóg að læra heima, Soffía,” sagði hann þegar hann kom inn til mín og settist á rúmið mitt um kvöldið. “Þú mátt líka sýna hvað í þér býr. Þetta er eins og í sundinu. Maður verður að setja sér markmið og einbeita sér. Segðu meira í tímunum!”

 Ég kinkaði kolli og reyndi að standa mig betur í tímunum. Ég rétti oft upp hönd en annað hvort varð ég alveg tóm og gleymdi því sem ég ætlaði að segja eða ég roðnaði og tuldraði eitthvað.

  “Þetta verður skemmtilegt partí á morgun,” segir Alexander.
 Ég kinka aftur kolli. Mér líður næstum því eins og þegar ég þarf að segja eitthvað í tímunum. Ég er tóm í höfðinu. Ég leita ákaft eftir einhverju til að segja.
 “Við hlökkum líka til,” tekst mér að stama upp úr mér. Það hljómar eitthvað svo heimskulega.
 En það er alveg rétt að við Inga hlökkum til. Ég ætla að gista hjá henni. Þá verður minna vesen með mömmu og pabba. Inga ætlar að lána mér föt og snyrtidót. Ég ætla að vera í kjól sem hún keypti í Grikklandi síðasta sumar. Hann er ljósblár og mjög þröngur. Ég hef aldrei verið í svona kjól áður.
 “Sebastían kemur með bjór,” segir Alexander þegar við göngum í áttina að íþróttahöllinni. Hann heldur hurðinni fyrir mig.
 “Æði,” segi ég. Ég hef aldrei smakkað bjór. Mig langar heldur ekkert sérstaklega til þess. Pabbi yrði brjálaður ef hann frétti að strákarnir ætluðu að drekka áfengi. Ég fengi reyndar ekki leyfi til að fara í partíið ef hann vissi að ég ætlaði í kjólnum hennar Ingu.
 Alexander hverfur inn í búningsklefa strákanna. “Sjáumst, Soffía!” hrópar hann.

  Ég heyri hljóðin í sturtunum og djúpum röddum strákanna og flýti mér að líta undan. Það væri hræðilega vandræðalegt ef ég sæi óvart allsberan strák.
 Búningsklefi stelpnanna er aftur á móti tómur. Ég er fyrst. Ég mæti alltaf korteri á undan hinum. Þá get ég farið í sturtu í ró og næði og setið með handklæðið vafið um mig og hugsað um æfingu dagsins. Pabbi hefur kennt mér þetta. Ég sit alveg kyrr, anda rólega og kem skikk á hugsanir mínar. Ég einbeiti mér og íhuga hvernig ég geti bætt eigið met. Pabbi var keppnissundmaður og vann einu sinni til verðlauna á Ólympíuleikunum. Nú er röðin komin að mér. Ég er líka mjög góður sundmaður. Ef ég legg hart að mér er hugsanlegt að ég verði valin til að keppa eftir fjögur ár.
 Ég loka augunum og halla mér að veggnum. Það er hlýtt í búningsklefanum en mér er kalt. Það lekur úr hárinum á mér niður eftir bakinu. Ég hef ekki sett á mig sundhettuna enn þá. Ég bíða alltaf með það þangað til í lengstu lög af því að ég er hræðileg með þessa hvítu, þröngu hettu á höfðinu. Ég lít út eins og visinn og blautur spergill. Ég gæti vel hugsað mér að fara á sólbaðsstofu á veturna en pabbi segir að maður fái krabbamein af því.
 Ég reyni eins og ég get að einbeita mér að æfingu dagsins en tilhugsunin um Alexander truflar mig. Hann sagði nafnið mitt tvisvar. Spurði hvort ég ætlaði í partíið. Af hverju gerði hann það? Ég opna augun og kinka stuttlega kolli til stelpnanna sem eru byrjaðar að mæta á æfinguna. Auðvitað meinti hann ekkert með því. Hann hefur engan áhuga á mér. Enginn strákur hefur nokkurn tímann verið skotinn í mér.  
 Ég fer á klósettið til að pissa. Strákarnir verða alltaf skotnir í Ingu eða Ellu. Inga gengur í kjólum og er með sítt, ljóst hár. Brjóstin á henni hafa stækkað mikið síðasta ár. Hún notar...



Ihre Fragen, Wünsche oder Anmerkungen
Vorname*
Nachname*
Ihre E-Mail-Adresse*
Kundennr.
Ihre Nachricht*
Lediglich mit * gekennzeichnete Felder sind Pflichtfelder.
Wenn Sie die im Kontaktformular eingegebenen Daten durch Klick auf den nachfolgenden Button übersenden, erklären Sie sich damit einverstanden, dass wir Ihr Angaben für die Beantwortung Ihrer Anfrage verwenden. Selbstverständlich werden Ihre Daten vertraulich behandelt und nicht an Dritte weitergegeben. Sie können der Verwendung Ihrer Daten jederzeit widersprechen. Das Datenhandling bei Sack Fachmedien erklären wir Ihnen in unserer Datenschutzerklärung.