E-Book, Icelandic, Deutsch, 416 Seiten
Tan Kona eldhúsguðsins
1. Auflage 2021
ISBN: 978-87-26-69634-9
Verlag: Saga Egmont
Format: EPUB
Kopierschutz: 6 - ePub Watermark
E-Book, Icelandic, Deutsch, 416 Seiten
ISBN: 978-87-26-69634-9
Verlag: Saga Egmont
Format: EPUB
Kopierschutz: 6 - ePub Watermark
Amy Tan er dóttir kínverskra innflytjenda í Bandaríkjunum og birta verk hennar mörg hver þann veruleika. Amy fræðir lesendur um lífið sem Kínverskir innflytjendur hafi margir lifað sem og þá fortíð sem börn þeirra vita oft lítið sem ekkert um. Í gegnum fjölskyldusambönd nær hún á fallegan máta að sýna það hvernig vitneskja um fortíðina getur spilað mikilvægt hlutverk þegar kemur að lærdómi varðandi nútíðina. Á sama tíma og sögupersónurnar verða fróðari um líf sitt þá verður lesandinn ef til vill þakklátari fyrir sína eigin gæfu og litlu hlutina í hinu hversdaglega lífi.
Weitere Infos & Material
Verslun guðanna
Ævinlega þegar móðir mín talar við mig hefur hún samræðurnar eins og við værum þegar staddar í miðri orðasennu.
„Pearl-ah, verð að fara, get ekki annað,“ sagði móðir mín þegar hún hringdi í vikunni sem leið. Eftir allmargar mínútur komst ég að því af hverju hún var að hringja: Helen frænka var að bjóða allri fjölskyldunni í trúlofunarveislu frænda míns, Bao-baos.
„Öll fjölskyldan“ þýðir Kwong-fjölskyldan og Louie-fjölskyldan. Kwongarnir eru Helen frænka, Henry frændi, Mary, Frank og Bao-bao. Og núorðið á „Louie-fjölskyldan“ eiginlega bara við móður mína og mig þar sem faðir minn er dáinn og Samuel bróðir býr í New Jersey. Við höfum verið kölluð „öll fjölskyldan“ síðan ég man eftir mér, enda þótt Kwongarnir séu ekki skyldir okkur heldur bara tengdir. Fyrri maður Helen frænku var móðurbróðir minn sem dó löngu áður en ég fæddist.
Og svo er það frændi minn, Bao-bao, sem heitir réttu nafni Roger. Allir í fjölskyldunni hafa kallað hann Bao-bao síðan hann var kornabarn og bao-bao þýðir líka „elsku barn“. Seinna héldum við áfram að kalla hann þetta vegna þess að hann var grenjuskjóða sem fór alltaf að væla undir eins og frænka mín og frændi komu inn og hélt því fram að við hinir krakkarnir hefðum verið að striða honum. Og þó að hann sé nú orðinn þijátíu og eins köllum við hann ennþá Bao-bao – og við erum ennþá að stríða honum.
„Bao-bao? Hvernig getur hann haldið trúlofunarveislu?“ sagði ég. „Þetta verður þriðja hjónabandið hans.“
„Fjórða trúlofunin!“ sagði móðir mín. „Þeirri síðustu giftist hann ekki, sleit því eftir að við vorum búnar að senda gjöf. Auðvitað kallar Helen þetta ekki trúlofunarveislu. Hún segir að þetta sé ættarmót fyrir Mary.“
„Kemur Mary?“ spurði ég. Samband okkar Mary er annað og meira en bara frænkna. Hún er gift Doug Cheu sem var í læknisfræði með manninum mínum, Phil Brandt, og það var reyndar hún sem kynnti okkur fyrir sextán árum.
„Mary kemur, með mann og börn,“ sagði móðir mín. „Þau fljúga frá Los Angeles í næstu viku. Enginn tími til að fá afslátt. Miðar á fullu verði, hugsaðu þér!“
„Í næstu viku?“ sagði ég og leitaði að afsökunum. „Það er ansi stuttur fyrirvari til að breyta okkar áætlunum. Við eigum að …“
„Helen frænka gerir ráð fyrir ykkur. Matarveisla á Water Dragon Restaurant – fimm borð. Ef þið komið ekki hefur hún hálfu borði of mikið.“
Ég sá Helen frænku fyrir mér gildna um hálft borð og er hún þó gild fyrir. „Hverjir koma fleiri?“
„Fullt af málsmetandi fólki,“ svaraði móðir mín og sagði „málsmetandi“ eins og hún ætti við fólk sem henni líkaði ekki við. „Auðvitað segir hún fólki líka að Bao-bao verði þarna með nýju unnustuna. Og þá spyrja allir: „Unnustu? Er Bao-bao kominn með nýja unnustu?“ Þá segir Helen: „Æ, klaufi er ég. Þetta átti að vera óvænt tilkynning í veislunni. Lofaðu að segja engum.“
Móðir mín hnussaði. „Hún lætur alla vita svona. Svo nú verðurðu að koma með gjöf, líka óvænt. Hvað keyptirðu síðast?“
„Handa Bao-bao og þessari háskólastelpu? Veit það ekki, kannski bakka undir konfekt.“
„Sendi hann bakkann til baka eftir að slitnaði upp úr því?“
„Líklegast ekki. Ég man það ekki.“
„Þarna sérðu! Svona eru Kwongarnir. Ekki eyða eins miklu í þetta skipti.“
Tveim dögum fyrir kvöldverðinn hringir móðir mín aftur.
„Nú er of seint að gera eitthvað í málinu,“ sagði hún eins og það væri mér að kenna hvað sem það var. Og svo sagði hún mér að Du frænka hefði dáið níutíu og sjö ára gömul. Þessi frétt kom mér á óvart; ég hélt hún væri dáin fyrir mörgum árum.
„Hún arfleiddi þig að fallegum hlutum,“ sagði móðir mín. „Þú getur komið og sótt þá um helgina.“
Du frænka var reyndar skyld Helen, hálfsystir föður hennar eða eitthvað í þá áttina. Ég man hins vegar að það var móðir mín sem hafði alltaf hjálpað til við að annast Du. Hún fór út með ruslið fyrir hana einu sinni í viku. Hún kom í veg fyrir að gamla konan gerðist áskrifandi að tímariti í hvert skipti sem hún fékk freistandi inngöngutilboð. Hún lagði hvað eftir annað fram beiðni um að opinber sjúkrastuðningur greiddi jurtalyfin sem Du notaði.
Árum saman kvartaði móðir mín undan því að hún skyldi gera þetta allt – ekki Helen. „Helen, hún býðst ekki einu sinni til þess,“ var móðir mín vön að segja. Og svo einn daginn – fyrir kannski svona tíu árum – stakk ég upp í móður mína. Ég sagði: „Af hverju segirðu ekki bara Helen frænku hvað er að angra þig og hættir að kvarta?“ Þetta var það sem Phil hafði lagt til að ég segði, skynsamleg aðferð til að fá móður mína til að átta sig á hvað það var sem mæddi hana svo hún gæti loksins gert eitthvað raunhæft í málinu.
En þegar ég sagði þetta horfði móðir mín á mig steinþegjandi og sviplaus í framan. Og eftir þetta hætti hún að kvarta við mig. Og þegar við fórum aftur að tala saman var aldrei framar minnst á Du. Ég hugsa það sé þess vegna sem ég fór að halda að hún væri dáin fyrir löngu.
„Hvað var það?“ spurði ég þegar ég heyrði fréttina og reyndi að tala stillilega eins og þetta væri áfall. „Hjartaslag?“
„Strætisvagn,“ sagði móðir mín.
Du hafði víst verið við hestaheilsu alveg fram í lokin. Hún var á ferð í strætisvagni þegar hann slangraði til hliðar til þess að forðast það sem móðir mín kallaði „tryllitæki með brjáluðum táningum“ sem fór yfir á rauðu. Du kastaðist fram fyrir sig og datt á gólfið. Móðir mín hafði auðvitað farið strax að heimsækja hana á spítalann. Læknarnir fundu ekkert annað en þessar venjulegu bólgur og skrámur. En Du sagðist ekki hafa tíma til að bíða eftir að læknarnir kæmust að því sem hún vissi þegar. Svo hún lét móður mína skrifa fyrir sig erfðaskrá og hún átti að fá þrjátíu ára gamla sófann hennar, svarthvíta sjónvarpið hennar og þess háttar nokkuð. Seint sama kvöld dó hún úr heilameiðslum sem ekki höfðu fundist.
„Bao-bao Roger sagði að við ættum að fara...




